Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Apple með meira handbært fé en ríkis­sjóður Bandaríkjanna


31. júlí 2011 klukkan 10:15

Apple ræður nú yfir meiru handbæru fé en bandaríska ríkið að mati BBC.

Fimmtudaginn 28. júlí var handbært fé í ríkissjóði Bandaríkjanna 73,7 milljarðar dollara og var það lægri fjárhæð en hjá Apple samkvæmt reikningum fyrirtækisins en í lok júní var handbært fé þess 76,4 milljarðar.

Ástæðan er einföld: meira er greitt úr ríkissjóði Bandaríkjanna en kemur í hann. Staðan er allt önnur hjá Apple sem sópar að sér fé og heldur útgjöldum í skefjum.

Óljóst er hvernig Apple ætlar að verja fé sínu. „Apple heldur spilum sínum jafnan fast að sér,“ segja sérfræðingar.

Um helgina er tekist á um fjármál og breytingar á lánsheimildum Bandaríkjastjórnar á þinginu í Washington. Mikilvægustu dagsetningar í málinu eru þessar:

  • 2. ágúst: Síðasti dagur til að veita rýmri heimildir að mati fjármálaráðherra.
  • 3. ágúst: Greiðsla á lífeyri frá ríkinu sem nemur um 23 milljörðum dollara. Ársfjórðungsleg tilkynning um þörfina á endurfjármögnun, það er útgáfu ríkisskuldabréfa til langs tíma.
  • 5. ágúst: Bandaríkjaþing fer í sumarleyfi.
  • 10. ágúst: Ríkið á að greiða 8,5 milljarða í eftirlaun.
  • 9-11. ágúst: Útgáfa á ríkisskuldabréfum til 3, 10 og 30 ára.
  • 15. ágúst: Ríkið á að greiða um 41 milljarð dollara í afborganir og vexti á ríkisskuldabréfum auk annarra krafna.

Heimild: Jydske Bank, BBC.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS