Nordea-bankinn ætlar að fækka starfsmönnum ætlar að bankinn um 2000 manns á árunum 2011 og 2012: 500 til 650 í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi og 200 til 300 manns í Noregi.
Christian Clausen, forstjóri Nordea, segir að þetta verði ekki auðveld aðgerð en hún sé óhjákvæmileg til að tryggja arðbæran rekstur bankans og gott lánshæfismat hans. Án þess að þau grunnatriði séu í lagi sé bankinn ekki samkeppnisfær og geti ekki boðið viðskiptavinum sínum trausta og örugga þjónustu á viðunandi verði.
„Að bíða og sjá hvað kann að gerast er enginn kostur,“ segir forstjórinn.
Bankinn hefur tekið upp viðræður við starfasmannafélög um málið. Tilgangurinn er að breytingarnar á starfsmannafjölda ráðist sem mest af eðlilegri hreyfingu á starfsliði innan samsteypunnar þannig að ekki verði ráðið í störf sem losna. Nú starfa um 34.000 manns hjá Nordea.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.