Sunnudagurinn 28. febrúar 2021

Gull hækkar enn vegna evru-tengingar svissneska frankans


7. september 2011 klukkan 19:17

Gull mun hækka enn í verði að mati sérfræðinga og gegna mikilvægara hlutverki sem skjól fyrir fjárfesta á óvissutímum eftir að svissneski frankinn var tengdur evrunni til að koma í veg fyrir að hann hækkaði enn frekar vegna eftirspurnar sem stafaði af vantrú á evrunni.

Gull hefur hækkað jafnt og þétt undanfarna mánuði, síðast þriðjudaginn 6. september þegar verð þess fór hærra en nokkru sinni fyrr eða í 1.921.15 únsan.

„Þegar til lengri tíma er litið ætti þessi ákvörðun Seðlabanka Sviss að styrkja stöðu gulls sem skjóls fjárfesta og líklega verður mikið spurt eftir því vilji menn geyma verðmæti,“

Samhliða því sem sérfræðingar telja að að leitað verði í gull vilji menn tryggja verðmæti eigna sinna segja þeir að ásókn muni aukast í norska og sænska krónu og þá kunni jenið að endurheimta gamla stöðu sína en það hefur löngum verið keppinautur svissneska frankans.

Bent er á að lífeyrissjóðir festi aldrei stóran hluta eigna sinna í gulli, ef til vill 2 til 5% eigna sinna, þeir kjósi frekar eignir sem auðvelt sé að breyta í lausafé eins og bandarísk ríkisskuldab

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS