Laugardagurinn 16. janúar 2021

Ingibjörg Sólrún: Langsótt að þjóðin samþykki ESB-aðild


21. september 2011 klukkan 10:23

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, segir engan stjórnmálamann í raun berjast fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þá skorti pólitíska forystu almennt í ESB-aðildarmálinu auk þess sem stefnan sé óljós.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

Ingibjörg Sólrún sagði þetta í samtali við rás 2 að morgni 21. september. Hún taldi að það yrði á brattann að sækja fyrir ríkisstjórnina vegna ESB-aðildarinnar með klofið bakland og evrusamstarfið í uppnámi. Án þess að hart yrði barist fyrir aðild væri langsótt að þjóðin myndi fallast á hana.

Haustið 2008, eftir hrun bankanna, krafðist Ingibjörg Sólrún þess af samstarfsmönnum sínum í ríkisstjórn, sjálfstæðismönnum, að þeir mótuðu stefnu að hennar skapi í ESB-aðildarmálum og ríkisstjórnin óskaði eftir aðild. Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hratt af stað víðtækum ESB-umræðum á vettvangi Sjálfstæðisflokksins undir forystu sérstakrar nefndar. Störf hennar leiddu ekki til þess að sjálfstæðismenn teldu skynsamlegt að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Andstaða þeirra við aðild hefur styrkst síðan.

Á vefsíðunni Eyjunni er vitnað í orð Ingibjargar Sólrúnar á rás 2 en hún sagði:

„Ég tel að það vanti pólitíska forystu fyrir aðild að Evrópusambandinu. Þá er ég ekki að tala niður einhverja einstaklinga sem það eru að gera og reyna að vinna að þessu af heilum hug. Það sem ég er að segja er það að ríkisstjórnin stendur ekki á bak við þetta og það bara eitt og sér gerir þetta ferli mjög erfitt. Vegna þess að ef að það hefði verið ríkisstjórn heilshugar á bak við þetta þá hefði það verið stefnumótun. Þá hefði verið fólgin í þessu ákveðin stefnumótun og þá hefðu menn unnið í þessa veru og þá farið auðvitað í ákveðið aðlögunarferli. Það vilja menn ekki.

Ef þetta hefði verið skýr stefnumótun af hálfu stjórnvalda og stjórnin staðið heilshugar á bak við þetta þá hefði þetta getað nýst okkur í þeirri uppbyggingu sem við þurfum að fara í. Þá er þetta stefna og við þurfum svo mikið á því að halda að hér sé mörkuð einhver stefna til framtíðar. Ef ekki þessi þá einhver önnur. Að ætla sér að fara í þennan leiðangur með svona klofið bakland og með myntbandalagið í uppnámi það er ansi á brattann að sækja.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS