Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Svíar skyldaðir til að endurgreiða ESB landbúnaðarstyrki


22. september 2011 klukkan 15:51

Evrópusambandið hefur gefið Svíum fyrirmæli um að endurgreiða 870 milljónir sænskra króna (14,7 milljarða ISK) styrki til landbúnaðar, ber bændum að greiða þriðjung fjárhæðarinnar.

Lars Erik Lundkvist

Bændurnir fengu þessa styrki vegna beitilanda sinna á árunum 2005 til 2007 eftir að ESB kynnti nýja tegund af stuðningi við landbúnað sem nefnd var „eins-býlis-greiðsla“ segir Lars-Erik Lundkvist hjá Bændasamtökum Svíþjóðar (Lantbrukarnas riksförbund - LRF) við AFP-fréttastofuna fimmutdaginn 22. september.

Lundkvist segir að vandræði hafi risið við að skilgreina hver ætti rétt á að fá styrk, einkum vegna þess að „óljóst væri hvað fælist í orðinu beitiland“.

Sænska ríkisstjórnin skilgreindi reglurnar á annan veg en framkvæmdastjórn ESB og þess vegna fengu bændur styrki sem ESB taldi að ættu ekki að fá þá. Deilan var einkum milli ríkisins og framkvæmdastjórnarinnar svo að ríkið verður að endurgreiða mestan hluta fjárins, en um 10.000 bændur verða að greiða um 300 milljónir sænskra króna (5,1 milljarð ÍSK).

„Okkur finnst þetta há fjárhæð,“ segir Lundkvist og telur að einhverjir í hópi bænda muni áfrýja niðurstöðunni. Árið 2008 fékk Svíþjóð 947 milljónir evra (151, 5 milljarða ISK) frá ESB í landbúnaðarstyrki um 12,977 evra (2 milljónir ÍSK) á hvert býlí.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS