Laugardagurinn 25. júní 2022

Hollenzki seðlabanka­stjórinn: Gjaldþrot Grikklands ekki útilokað


23. september 2011 klukkan 07:02
Lögregla stendur vörð við þinghúsið í Aþenu.

Klaas Knot, bankastjóri Seðlabanka Hollands, sem sæti á í bankaráði Seðlabanka Evrópu segir í viðtali við hollenzka dagblaðið Het Financieele Dagblad, að ekki sé hægt að útiloka greiðslufall Grikklands. Í skýrslu, sem tekin hefur verið saman innan Seðlabanka Evrópu og Jurgen Stark er einn af höfundum að, segir að evran sem gjaldmiðill sé í hættu. Jurgen Stark sagði af sér sem einn af forsvarsmönnum Seðlabanka Evrópu vegna andstöðu við kaup bankans á skuldabréfum einstakra evruríkja, að sögn Reuters í morgun, sem segir að Klaas Knot sé einnig andvígur þeim skuldabréfakaupum.

Olli Rehn, sem sæti á í framkvæmdastjórn ESB segir að Evrópusambandið muni ekki leyfa stjórnlaust gjaldþrot Grikklands.

Markaðir í Asíu utan Japan féllu í nótt. Japanskir markaðir eru lokaðir vegna frídags. Suður-Kórea lækkaði um 5,7%, Tævan um 3,6%, Hong Kong um 2%. Þá lækkaði Ástralia um 1,6%. Lækkunin stöðvaðist vegna yfirlýsinga frá G-20 ríkjunum, þar sem fram kom að þau mundu gera ráðstafanir til að snúa þessari þróun við. Sú yfirlýsing varð til þess að evran styrktist.

Þá hafa málmar lækkað í verði á heimsmarkaði, sem varð til þess að hlutabréf í Rio Tintó lækkuðu í heild um 3,3% en það fyrirtæki á álverið í Straumsvík og bréf í BHP Billiton lækkuðu um 2,3% en það fyrirtæki kaupir ál af Norðuráli. Í London lækkuðu bréf í Rio Tintó yfir 10%. Kopar hefur einnig lækkað í verði

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS