Mánudagurinn 27. júní 2022

Moody's lækkar lánshæfiseinkunn Ítalíu


4. október 2011 klukkan 21:55

Moody‘s hefur lækkað lánshæfiseinkunn Ítalíu úr Aa2 í A2 og segir að horfur séu neikvæðar í landinu. Matsfyrirtækið vísar til vaxandi vanda á evru-svæðinu við að ljúka langtíma-fjármögnun.

Þótt ítölsk stjórnvöld þurfi ekki á miklum lánum að halda og einkaaðilar séu ekki mjög skuldsettir á Ítalíu segir Moody‘s markaðsstraumar séu andstæðir evrunni.

Silvio Berlusconi forsætisráðherra sagðist hafa búist við þessari ákvörðun.

BBC segir að líklegt sé að lánshæfiseinkunn ítalskra banka lækki á svipaðan hátt sem mundi leggja mikinn þrýsting á bankana þurfi þeir á lánum að halda.

Moody´s lýsti einnig áhyggjum yfir líkum á vesti á Ítalíu og nefndi kerfisvanda í evru-samstarfinu auk almennrar bolsýni á heimsmörkuðum.

Matsfyrirtækið nefnir einnig það sem kallað er „vandi við útfærslu og framkvæmd“ í skýrslu þess. Bent er á að enn hafi ekki tekist að hrinda í framkvæmd ákvörðunum á leiðtogafundi evru-ríkjanna 21. júlí sl. Þjóðþing ríkjanna 17 hafi ekki enn samþykkt tillögurnar. Þá sé það sjónarmið ríkjandi á mörkuðum að þessar ákvarðanir leiðtoga ríkjanna 17 dugi ekki til að leysa vandann á evru-svæðinu.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS