Fréttamaður Reuters-fréttastofunnar ráðleggur fólki í morgun að fylgjast vel með mótmælahreyfingunni í Bandaríkjunum, sem gengur undir nafninu „Hernemum Wall Street“ (Occupy Wall Street) og telur að hún geti leitt til meiriháttar breytinga í bandarískum stjórnmálum lifi hún vetrarmánuðina af. Fréttamaðurinn, sem hefur talað við mótmælendur segir að þrennt einkenni þessa hreyfingu:
Í fyrsta lagi komi mótmælendur úr ýmsum áttum og hafi mismunandi skoðanir á mörgum málum en séu sammála um eitt:
Bankarnir eru að féfletta fólk.
Í öðru lagi eru þeir þeirrar skoðunar að hinir ríku „eigi“ stjórnmálamennina.
Í þriðja lagi telja þeir að fjölmiðlar sjá atburðina með augum auðmanna.
Bæði Ben Bernanke, aðalbankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna og Warren Buffet, þekktasti fjárfestir Bandaríkjanna hafa lýst samúð með sjónarmiðum mótmælenda.
Reuters ráðleggur einnig að fólk fylgist með því hvort lögregla New York borgar fái fyrirmæli um að beita valdi gagnvart mótmælendum. Geri hún það muni mótmælin breiðast enn meira út.
Þá kemur fram á Reuters, að ríkissjóður Bandaríkjanna hafi lagt fram 14,3 trilljónir dollara til þess að bjarga fjármálafyrirtækjum á Wall Street. Þessi upphæð jafngildi allri landsframleiðslu Bandaríkjanna á árinu 2010.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.