Írar leggja nú mikla áherzlu á að auka erlendar fjárfestingar á Írlandi á ný og m.a. með því að leita til fólks af írsku bergi brotnu í öðrum löndum. Talið er að um 70 milljónir manna víðs vegar um heim eigi rætur að rekja til Írlands. Stefnt er að því með kynningarherferð, sem heitir Förum heim„ (Homecoming) að fjölga ferðamönnum á árinu 2013 um 325 þúsund. Þá hafa 100 kaupsýslumenn af írsku bergi brotnir verið beðnir um að koma Írum til aðstoðar með þátttöku í nefndum og ráðum á næstu fimm árum. Nýrri samskiptasíðu hefur verið komið upp til þess að tengja Íra víða um heim saman, sem nefnist Worldirish.com. Ennfremur verður stefnt að því að veita þeim Írum, sem búa erlendis en hlaupa undir bagga viðurkenningu á næstu fimm árum fyrir framlag þeirra í þágu Írlands. Þetta hefur komið fram á ráðstefnu í Dyflinnarkastala, sem nú stendur yfir. Einn þeirra, sem þar mun tala er Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti.
Frá þessu er sagt í Irish Times í morgun.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.