Sunnudagurinn 17. janúar 2021

Neyðar­sjóður ESB:Þjóðverjar vilja strangar starfs­reglur-Frakkar andvígir


9. október 2011 klukkan 08:03
Pool
Angela Merkel og Nicolas Sarkozy á blaðamannafundi í Deauville 18. október.

Ágreiningur Þjóðverja og Frakka um neyðarsjóð ESB, ESFS, snýst ekki bara um það, hvort Frakkar geti leitað til sjóðsins um endurfjármögnun frönsku bankanna. Frakkar vilja að sjóðurinn hafi að mestu leyti frjálsar hendur um starfsemi sína. Þjóðverjar eru annarar skoðunar að því er fram kemur í þýzkum blöðum í dag. Þjóðverjar vilja setja ESFS strangar starfsreglur, þar sem m.a. verði sett hámark á þá upphæð, sem sjóðurinn geti varið í þágu hvers ríkis fyrir sig. Ennfremur er sjóðnum ætlað að taka við því verkefni Seðlabanka Evrópu að kaupa skuldabréf einstakra evrurikja til þess m.a. að halda ávöxtunarkröfu þeirra niðri. Þjóðverjar vilja setja tímamörk á slík skuldabréfakaup af hálfu sjóðsins.

Þetta eru þau ágreiningsefni, sem Merkel og Sarkozy reyna að leysa sín í milli á fundi í Berlín í dag og í kvöld að sögn Reuters, sem byggir fréttir sínar að einhverju leyti á þýzka dagblaðinu Handelsblatt.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS