Miðvikudagurinn 14. apríl 2021

Poul Thomsen: Vaxandi pólitísk og félagsleg þreyta í Grikklandi


9. október 2011 klukkan 08:14

Poul Thomsen, fulltrúi AGS í þríeykinu svonefnda í Grikklandi (og Íslendingar þekkja til frá stöfum hans hér fyrir AGS) segir í viðtali við Welt am Sonntag, þýzka dagblaðið í dag að Grikkland sé á krossgötum. Það sé ljóst að björgunaráætlunin fyrir Grikkland standist ekki ef stjórnvöld grípi ekki til alvarlegri kerfisbreytinga. Við tökum tvö skref fram á við en svo eitt aftur á bak, segir Poul Thomsen að sögn ekathimerini, sem byggir frétt sína á þýzka sunnudagsblaðinu.

Thomsen segir einnig að nú gæti vaxandi pólitískrar og félagslegrar þreytu í Grikklandi. Grikkir telji nóg að setja lög en það þurfi líka að koma þeim í framvæmd. Þar vanti rétt kerfi, ekki sízt í skattamálum.

Ekathimerini segir, að þríeykið vilji að ákveðnum ríkisfyrirtækjum verði lokað, takmarkanir á aðgang að tilteknum starfsstéttum verði afnumdar og aukinn kraftur settur í einkavæðingu.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS