Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands og flokkur hans, Borgaravettvangur (PO), (mið-hægri flokkur) sigruðu í pólsku þingkosningunum sunnudaginn 9. október með 39,6% atkvæða samkvæmt útgönguspá.
PO hefur verið við völd síðan 2007. Flokkurinn fékk nokkru meira fylgi en stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, hinn íhaldssami flokkur laga og réttar (PiS) sem Jaroslaw Kaczynski stýrir (30,1%). Palikot-hreyfingin sem berst gegn kirkjulegu valdi fékk 10,1% atkvæða.
Haldist hlutföllin þessi getur Donald Tusk (54 ára) myndað stjórn að nýju og verður fyrstur pólskra stjórnmálaleiðtoga til að sitja áfram sem forsætisráðherra að loknum kosningum.
Tusk er eindreginn stuðningsmaður samstarfs á vettvangi ESB. Pólverjar standa utan evru-samstarfsins. Hagvöxtur hefur verið jafn og stöðugur í landi þeirra, ríkissjóðshalli er lítill og skuldir viðráðanlegar. Síðustu daga kosningabaráttunnar sagði Tusk að mestu skipti fyri Pólverja að forðast hörmungar pólitískrar upplausnar, efnahagslegt og fjárhagslegt hrun og halda áfram á þeirri braut sem fylgt hefur verið undanfarin fjögur ár.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.