Laugardagurinn 25. júní 2022

Hremmingar magnast hjá Blackberry


10. október 2011 klukkan 18:54

Milljónir manna í Evrópu, Indlandi, Afríku og Mið-Austurlandi sem nota Blackberry-tæki til símtala, vegna tölvupósts og netaðgangs hafa verið sambandslausir mánudaginn 10. október vegna þess að þjónusta fyrirtækisins Research in Motion (RiM) hefur legið niðri.

Talið er að þjónusturofið megi rekja til bilunar í gagnaveri RiM í Slough á Bretlandi. „Við erum að rannsaka málið og við biðjum viðskiptavini okkar afsökunar á öllum óþægindum á meðan unnið er að viðgerð,“ sagði í tilkynningu frá RiM.

Balckberry-eigendur mótmæltu harðlega eftir þeim leiðum sem þeim voru færar þjónusturofi hjá kanadíska fyrirtækinu RiM sem átti áður mjög undir högg að sækja vegna þess að viðskiptavinir þess hafa snúið sér að snjallsímum frá Apple eða Google.

RiM sendi nýlega frá sér spjaldtölvuna Playbook sem hefur hlotið slæmar viðtökur á markaðnum. Hafa ýmsir stjórnendur fyrirtækisins sagt skilið við það. Starfsmönnum hefur þegar verið fækkað um 2.000 á þessu ári til að bregðast við samdrætti í sölu.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS