Angela Merkel vill lögfesta lágmarkslaun í Þýzkalandi, sem Kristilegir demókratar hafa hingað til verið mjög andvígir. Þessar hugmyndir verða ræddar á flokksþingi CDU eftir tvær vikur skv. fréttum í Irish Times í morgun. Lágmarkslaun á markaði eru nú, 6,89 evrur á klukkustund í austurhluta Þýzkalands eða liðlega 1100 krónur en 7,79 evrur í vesturhlutanum eða um 1265 krónur á kukkutímann.
Blaðið segir að Merkel taki þá áhættu að kalla yfir sig andstöðu hefðbundinna kjósenda CDU með þessari tillögu. Hún sé hins vegar að búa sig undir kosningar 2013 og að ná til kjósenda sem fari milli flokka eftir aðstæðum hverju sinni. Með þessari tillögu hafi hún stolið senunni frá jafnaðarmönnum, sem hafi ætlað að gera lögfestingu lágmarkslauna að einu helzta kosningamáli sínu.
Irish Times bendir á að Merkel hafi gengið gegn nokkrum helgum véum CDU. Hún hafi tekið ákvörðun um að loka kjarnorkuverum í Þýzkalandi og hafi afnumið herskyldu í landinu.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.