Evru-svæðið stendur frammi fyrir „tilvistarkreppu“ og á henni verður að sigrast sagði Herman Van Rompuy, forseti leiðtogaráðs ESB, föstudaginn 11. nóvember í ræðu í Flórens. Hann sagðist ætla að gera allt sem í sínu valdi stæði til að viðhalda samheldni innan svæðisins. „Evran er liður í pólitískri vegferð sem heppnast ekki nema efnahagur sé stöðugur og heilbrigður,“ sagð hann.
Í ræðu sinni sagði Van Rompuy að evran yrði aldrei sterkari en veikasti hlekkur hennar og það yrði að binda enda á að ríki færu ólíkar leiðir í efnahagsmálum. „Við erum í krísu sem snertir sjálfa kviku Evrópusambandsins, evruna. Þetta er tilvistarkreppa og við ætlum okkur að komast út úr henni,“ sagði forseti leiðtogaráðsins. „Ekki er unnt að búa við sameiginlegan gjaldmiðil en láta síðan einstök ríki sjá um allt annað, þannig hefur það hins vegar verið.“
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.