Laugardagurinn 23. janúar 2021

London: Sjálfstætt Skotland mundi missa hernaðartengd verkefni fyrir milljarða punda


15. nóvember 2011 klukkan 08:45
BBC
Kortin sína hvernig pólitíska landslagið í Skotlandi hefur breyst á milli kosninganna 2007 og 2011. Guli liturinn til hægri, litur Skoska þjóðarflokksins er yfirgnæfandi. Frjálslyndi flokkurinn (appelsínugulur) er næstum horfinn og Verkamannaflokkurinn (rauður) hefur verulega minnkað.

Brezka ríkisstjórnin gefur til kynna að sjálfstætt Skotland mundi missa verkefni, sem tengjast hernaðarmálum í Bretlandi, sem mundi þýða milljarða punda tap og að þúsundir starfa mundu einnig tapast. Þetta kemur fram í The Scotsman í dag. Í frétt blaðsins kemur fram, að þetta snúist ekki sízt um skipasmíðaiðnaðinn í Skotlandi, sem byggir mjög á slíkum verkefnum. Þar er nú verið að byggja tvö ný flugmóðurskip fyrir sjóherinn. Um 9000 manns mundu missa vinnu sína, ef slík verkefni færu frá Skotlandi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS