Sunnudagurinn 24. janúar 2021

Merkel íhugar róttækar breytingar á þýzku stjórnar­skránni til að greiða fyrir ríkjabandalagi


15. nóvember 2011 klukkan 09:02
Angela Merkel

Þýzka tímaritið Der Spiegel segir, að forystumenn Kristilegra demókrata íhugi nú róttækar breytingar á stjórnarskrá Þýzkalands til þess að aðvelda sameiningu Evrópuríkja. Tímaritið segir, að hugmyndir séu um tvíþættar aðgerðir.

Í fyrsta lagi verði hugað að breytingum á sáttmálum Evrópusambandsins, sem mundu gera kleift að setja skuldug ríki undir beina stjórn Brussel.

Í öðru lagi að stefna á pólitískt ríkjabandalag í Evrópu, sem mundi hins vegar kalla á grundvallarbreytingar á þýzku stjórnarskránni, sem er heilög í augum Þjóðverja. Tvær leiðir eru til þess. Annars vegar að gera breytingar, sem hægt er að ná fram með 2/3 hlutum atkvæða í þýzka þinginu. Hins vegar að gera róttækari breytingar, sem kalli á þjóðaratkvæðagreiðslu í Þýzkalandi.

Um þessar hugmyndir eru skiptar skoðanir innan flokks Kristilegra demókrata. Tímaritið segir, að upphaflega hafi Schauble fjármálaráðherra sagt Merkel fyrir mörgum mánuðum, að ekki væri hægt að leysa vanda evruríkjanna með skammtímaaðgerðum við og við, hún hafi hafnað hugmyndum hans en síðar breytt um skoðun.

Gert er ráð fyrir að tillögur um slíka útfærða breytingu liggi fyrir um áramót. Þessar hugmyndir eru af sama meið og Sarkozy, Frakklandsforseti, setti fram á fundi með stúdentum fyrir skömmu og sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS