Þriðjudagurinn 28. júní 2022

„Beinlínis óheiðarlegt“ að halda viðræðum við ESB áfram segir Bjarni Benediktsson


17. nóvember 2011 klukkan 19:05

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í setningarræðu 40. landsfundar Sjálfstæðisflokksins fimmtudaginn að það væri rökrétt að draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka. Það væri beinlínis óheiðarlegt af Íslendingum sem þjóð og græfi undan virðingu okkar á alþjóðavettvangi að standa í viðræðum um aðild að ESB þegar hugur fylgdi ekki máli, hvorki hjá þjóðinni né ríkisstjórninni.

Bjarni Benediktsson setur 40. landsfund Sjálfstæðisflokksins fimmtudaginn 17. nóvember 2011.

Í ræðu sinni við upphaf 40. landsfundarins í þéttsetinni Laugarsdalshöll, en 1.600 manns eiga rétt til setu á fundinum sagði Bjarni Benediktsson að á síðasti landsfundi, sumarið 2010, hefði verið ályktað um að draga bæri ESB-aðildarumsóknina til baka. Það væri skýr stefna flokksins. Síðan sagði hann orðrétt:

„Að mínu mati er þetta rökrétt niðurstaða, óháð því hvaða afstöðu menn hafa til aðildar, því að það er beinlínis óheiðarlegt af okkur sem þjóð, og grefur undan virðingu okkar á alþjóðavettvangi, að standa í svo þýðingarmiklum viðræðum þegar hugur fylgir alls ekki máli, hvorki hjá þjóðinni né hjá ríkisstjórninni sem stendur að leiðangrinum.“

Bjarni sagði við blasa að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur væri ekki „trúverðugur viðsemjamndi“. Í ríkjum ESB væru menn sífellt betur að átta sig á því að „viðræðurnar [væru] miklu nær því að vera sýndarviðræður en aðildarviðræður“. Það skorti „alla pólitíska forystu í málinu“.

Þá sagði Bjarni Benediktsson:

„Það er sannfæring mín að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB. En ég ítreka það sem ég sagði á síðasta landsfundi: Ef ríkisstjórnin þráast við, og heldur viðræðunum til streitu, er það að sjálfsögðu skylda okkar að beita okkur af alefli fyrir því að hagsmuna Íslands verði gætt í hvívetna í viðræðuferlinu. Við þekkjum jú öll hversu mikla hæfileika og sérþekkingu þessi ríkisstjórn hefur til að gera hagfellda samninga við önnur ríki.“

Vék hann síðan að Icsave-málinu.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS