Angela Merkel Þýskalandskanslari snerist harkalega gegn evru-skuldabréfum í umræðum fjárlagafrumvarp ársins 2012 á þýska þinginu miðvikudaginn 23. nóvember.
„Ég tel það mjög alvarlegt umhugsunarefni og með öllu óviðeigandi að framkvæmdastjórn ESB beini í dag athygli sinni að evru-skuldabréfum,“ sagði hún og vísaði með því til blaðamannafundar sem José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hélt 23. nóvember til að kynna tillögu sína um evrus-skuldabréfin.
Það er rangt að halda því fram að „breyting skulda í sameiginlegan vanda auðveldi okkur að sigrast á kerfisvanda myntsamstarfsins,“ sagði hún. Það væri miklu nær að styrkja stöðguleika sáttmála ESB og herða refsingar vegna slíkra brota en 60 sinnum hefði verið brotið gegn honum.
Evru-skuldabréfin mundu líklega gagnast ríkjum á borð við Grikkland sem búi nú við mikinn lántökukostnað á opnum mörkuðum en skapa hættu fyrir ríki sem hefðu góð tök á ríkisfjármálum sínum og auka kostnað þeirra vegna lána.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.