Miðvikudagurinn 24. febrúar 2021

Merkel og Sarkozy á fundi í dag


5. desember 2011 klukkan 06:09
Angela Merkel og Nicolas Sarkoxy koma út af leiðtogafundinum aðfaranótt 27. október. Merkel treysti stöðu sína í forystu ESB. Myndin ber það með sér.

Angela Merkel og Nicholas Sarkozy hittast á fundi í París í dag, sem BBC segir að sé upphafið að miklum fundahöldum í Evrópu í þessari viku, sem ljúki með leiðtogafundi evruríkjanna á fimmtudag og föstudag. Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna verður á fundum í Evrópu frá þriðjudegi til fimmtudags með ráðamönnum þar.

BBC segir að enn sé skoðanamunur á milli Merkel og Sarkozy, sem einkennist af því að Þjóðverjar vilji sterka miðstýringu ríkisfjármála evruríkjanna og sjálfkrafa refsingar, ef ekki er staðið við skuldbindingar en Sarkozy leggi enn áherzlu á sjálfstæði einstakra aðildarríkja.

Daily Telegraph segir í dag að í hugmyndum Merkel felist fyrirframskoðun fjárlaga hvers ríkis, sjálfkrafa refsingar, sem felist m.a. í niðurskurði á framlögum úr sjóðum ESB, missi atkvæðisréttar o.fl. Vaxandi andstaða sé við slíkar hugmyndir í Frakklandi. Einn stjórnmálamaður hefur líkt stöðu Sarkozy gagnvart Merkel við uppgjöf Daladiers, þáverandi forsætisráðherra Frakklands á fundi með Hitler í Munchen 1938.

Marie Le Pen er nú með 20% fylgi í skoðanakönnunum og boðar að láta eigi evruna deyja eðlilegum dauðdaga.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS