Miðvikudagurinn 27. janúar 2021

Spiegel: Bandalag hinna óviljugu-deilur Breta og Frakka blossa upp á ný


12. desember 2011 klukkan 08:54
Angela Merkel og Nicolas Sarkozy í París 5. desember 2011.

Spiegel segir að í Brussel hafi orðið til bandalag hinna óviljugu. Önnur ESB-ríki fylgi forystu Þýzkalands mjög hikandi eftir, fyrst og fremst af tveimur ástæðum. Annars vegar hafi þau áhyggjur af því, að fjárfestar vilji ekki kaupa skuldabréf, sem þau gefa út. Hins vegar hafi þau áhyggjur af lækkandi lánshæfismati.

Tímaritið segir að Angela Merkel vilji koma í veg fyrir að of mikil gjá myndist á milli Bretlands og annarra ESB-ríkja. Hins vegar sé niðurstaðan meira í samræmi við óskir Frakka, sem lengi hafi viljað gera ESB að sjálfstæðri blokk, sem standi i samkepppni við Bandaríkin. Bretar hafi hins vegar komið í veg fyrir það með því að rækta tengslin yfir Atlantshafið. Nú sé þessi gamla deila að brjótast upp á yfirborðið á nýjan leik.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS