Laugardagurinn 25. júní 2022

Danir vilja þjóðar­atkvæða­greiðslu um aðild að evru-samningi


13. desember 2011 klukkan 12:02

Ný skoðanakönnun í Danmörku sýnir að meihluti Dana vill að þjóðin verði spurð hvort hún vilji aðild að nýjum evru-samningi. Alls segjast 53,9% Dana vilja að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu verði það niðurstaða danskra stjórnmálamanna að Danmörk eigi að gerast aðili að 17 ríkja evru-samningnum,

Danskir fjölmiðlar segja að á danska þinginu séu stuðningsmenn ESB-aðildar landsins ekki þeirrar skoðunar að gengið skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál.

„Við viljum ganga eins langt til samkomulags um þetta mál innan ESB og frekast er kostur en ég sé ekki að við getum gengið svo langt að ástæða verði til að greiða þjóðaratkvæði um það,“ segir Lars Barfoed, formaður Íhaldsflokksins, við Morgenavisen JyllandsPosten (MJP).

Stjórnarflokkarnir, vinstri flokkarnir, í Danmörku vilja ekki segja neitt um málið að svo stöddu. Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra hittir þriðjudaginn 13. desember fulltrúa þingflokkanna í Kaupmannahöfn og greinir þeim frá fundinum í Brussel í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum MJP er það stefna ríkisstjórnarinnar að Danir fresti öllum ákvörðunum um afstöðu sína þar til málið skýrist betur og hvers megi vænta af evru-samningnum.

Búist er við því að í þessari viku muni Herman Van Rompuy, forseti leiðtogaráðs ESB, senda frá sér minnisblað um hvernig einstökum atriðum í evru-samningnum verði háttað.

Í fyrrnefndri könnun sem gerð er af Rambøll kemur fram að Danir efast um að evru-samningurinn muni leysa skuldavandann í Evrópu. Aðeins 22% telja að evru-samningurinn sé til marks um rétt viðbrögð við kreppunni. Þó telja 45,1% að það yrði best fyrir Danmörku að gerast aðili að samningnum.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS