Breski Íhaldsflokkurinn undir forystu Davids Camerons forsætisráðherra hefur styrkt stöðu sína eftir að Cameron sagði skilið við evru-ríkin innan ESB á leiðtogafundi í Brussel 8. og 9. desember.
Niðurstöður könnunar sem The Sunday Telegraph birtir sunnudaginn 18. desember sýna 40% fylgi við Íhaldsflokkinn tveimur stigum meira fylgi en í síðustu könnun og mesta fylgi flokksins fá því í þingkosningunum í maí 2010.
Verkamannaflokkurinn tapar tveimur stigum og fer í 34%, fylgi frjáslyndra sem sitja í stjórn með íhaldsmönnum helst óbreytt 14%.
Í könnuninni kom fram að 41% kjósenda töldu að ágreiningur milli stjórnarflokkanna um ESB mundi splundra samsteypustjórninni, 45% töldu hins vegar að stjórnin mundi lifa þrátt fyrir þennan ágreining.
Þá sögðust 35% vilja þjóðaratkvæðagreiðslu innann eins árs um hvort Bretar ættu að segja sig úr ESB eða ekki, 16% vildu slíka atkvæðagreiðslu fyrir lok þessa þings og 8% við lok næsta þings, 25% vildu enga slíka atkvæðagreiðslu 16% skiluðu auðu um þetta mál.
ICM Research ræddi við 1008 fullorðna í síma miðvikudaginn 14. og fimmtudaginn 15. desember
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.