Mánudagurinn 1. mars 2021

Bretland: Stjórnvöld ræða gjaldeyris­höft falli evran


27. desember 2011 klukkan 07:23

Brezk stjórnvöld búa sig nú undir hugsanlegt fall evrunnar að sögn Daily Telegraph í morgun en blaðið tekur fram, að sá undirbúningur snúist um að geta mætt verstu mögulegu aðstæðum. Kjarninn í slíkum aðgerðum af hálfu Breta væru gjaldeyrishöft. Í því tilviki, að evrusvæðið félli saman telja Bretar hættu á fjárflótta frá veikustu ríkjunum til annarra landa m.a. Bretlands. Það fjárstreymi mundi keyra gengi sterlingspundsins upp, sem aftur mundi leiða til þess að forsendur mundu bresta fyrir efnahagsstefnu ríkisstjórnar Camerons. Þess vegna er rætt um gjaldeyrishöft og þá m.a. vísað til reynzlu Svisslendinga, sem neyddust til að tengja gengi svissneska frankans evrunni fyrir nokkrum mánuðum til að koma í veg fyrir innstreymi fjár til Sviss.

Fjórir stærstu bankar Bretlands hafa lánað samtals 170 milljarða punda til Grikklands, Írlands, Ítalíu, Portúgals og Spánar. Tveir af þessum bönkum hafa lánað meira en nemur öllu eigin fé þeirra til þessara landa, þ.e. Barclays banki og Royal Bank of Scotland.

Þá undirbúa stjórnvöld í Bretlandi hugsanlegan brottflutning mikils fjölda Breta frá aðildarríkjum evrunnar, sem gætu strandað þar ef gjaldmiðillinn félli og greiðslukerfi stöðvuðust alveg.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS