Framkvæmdastjórn ESB og stjórnvöld í Washington hafa lýst áhyggjum vegna þróunar á stjórnarháttum í Ungverjalandi. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ritaði langt bréf til Viktors Orbans, forsætisráðherra Ungverjalands, föstudaginn 23. desember þegar þing Ungverjalands hafði sett ný kosningaákvæði í stjórnarskrá landsins sem þrengir mjög að stjórnarandstöðunni.
Þennan sama föstudag hafnaði Orban tilmælum frá José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB, um að afturkalla tvö ný lög, það er um ungverska seðlabankann og ríkisfjármál. Þau eru talin brjóta í bága við lög ESB. Forsætisráðherrann sagðist alls ekki mundu hrófla við þessum lögum enda hefði þingið í Búdapest mótað einhverja bestu efnahagsáætlun í Evrópu. Barroso ætti frekar að fagna slíkum lögum en leggjast gegn þeim.
Efni úr bréfi Hillary Clinton var lekið þriðjudaginn 27. desember á vefsíðu stjórnarandstöðublaðsins Nepszabadsag sem ber fyrir sig diplómatíska heimildarmenn í Washington. Utanríkisráðherrann vekur máls á því að jafnvægi í þrískiptingu valdsins í Ungverjalandi hafi verið raskað með nýjum dómstólalögum, takmörkunum á frelsi fjölmiðla og lögum um trúfrelsi og störf safnaða.
Heimild: Le Monde
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.