Sunnudagurinn 7. mars 2021

Saksóknari pólska hersins skýtur sjálfan sig eftir að hafa gert hlé á blaðamannafundi


9. janúar 2012 klukkan 12:59

Saksóknari pólska hersins skaut sjálfan sig í höfuðið eftir að hafa slitið blaðamannafundi í skrifstofu sinni mánudaginn 9. janúar. Mikolaj Przybyl ofursti var að verja rannsókn á vegum hersins á fréttaleka vegna flugslyssins 2010 sem varð forseta Póllands að aldurtila.

Ofurstinn bað fréttamenn að yfirgefa skrifstofu sína svo hann gæti fengið „hlé“.

Mikolaj Przybyl

Eftir að hafa heyrt háan skell sneru fréttamennirnir til baka og sáu hann þá liggja á gólfinu og blóð við höfuð hans. Przybyl er nú á sjúkrahúsi og ekki í lífshættu.

Einn fréttamanna sagði við pólska sjónvarpsstöð: „Við heyrðum háan skell og snerum aftur inn í skrifstofuna af því að við héldum að myndavél hefði dottið. Þá sáum við saksóknarann hreyfingarlausan á gólfinu í blóðpolli, skammbyssa hans var við hlið hans.“

Bronislaw Komorowski, forseti Póllands, hefur lýst „áhyggjum“ vegna atviksins og segist hafa beðið yfirmann öryggisstofnunar ríkisins að fylgjast með framvindu málsins.

Á blaðamannafundinum neitaði Przybyl því að saksóknarar í Poznan, Vestur-Póllandi, hefði hlerað fréttamenn sem unnu að öflun frétta um flugslysið.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS