Föstudagurinn 15. janúar 2021

Umræður vegna greiðslu á hótelreikningi á Oktoberfest hrella nú forseta Þýskalands - Merkel segir hann verða að svara skýrt


16. janúar 2012 klukkan 06:10
Christian Wulff og Angela Merkel

Nýjar ásakanir hafa komið vegna fjármála Christians Wulffs, forseta Þýskalands, eftir að kvikmyndaframleiðandi sagðist hafa greitt hótelreikning fyrir hann í München. Forsetinn segir að hann hafi ekki vitað um greiðsluna. Fréttir birtust sunnudaginn 15. janúar um að David Grönvold hefði greitt hluta af hótelreikningi Wulffs í tengslum við hið árlega Októberfest í München.

Grönvold bauð forsetanum með sér til München þegar hann var forsætisráðherra í Neðra-Saxlandi segir í Der Spiegel. Kvikmyndaframleiðandinn segist hafa hlaupið undir bagga við greiðslu á hótelreikningi forsætisráðherrahjónanna, það er mismuninn milli þess sem Wulff greiddi og það sem hótelíbúðin kostaði. Hann hefði verið fluttur í dýrari íbúð við komu konu sinnar og barns.

Lögfræðingur Wulffs segir að umbjóðandi sinn hafi fengið fyrir reikning fyrir gistinguna á Bayerischer Hof hótelinu. Hann hafi síðan framsent hann til flokksdeildar kristilegra demókrata í Neðra-Saxlandi þar sem hann hafi rekið fleiri opinber erindi í München. Lögfræðingur Grönewolds segir að Wulff hafi ekkert vitað um aukakostnaðinn.

„Til þess að Wulff fengi betra herbergi greiddi umbjóðandi minn 200 evrur á nótt í tvær nætur, alls 400 evrur,“ sagði lögfræðingur Grönewolds. Kvikmyndaframleiðandinn hefði sjálfur lagt til skipti á herbergjum til að betur færi um Wulff og fjölskyldu hans.

Angela Merkel Þýskalandskanslari áréttaði stuðning sinn við forsetann sunnudaginn 15. janúar. Hann yrði hins vegar sjálfur að veita viðhlítandi svör við ásökunum á hendur sér. „Virðing fyrir störfum hans er nátengd svörunum sem hann gefur,“sagði hún við útvarpsstöðina Deutschlandfunk. „Þegar nýjar spurningar vakna mun forsetinn svara þeim.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS