Meðal franskra græningja og umhverfissinna vex þeirri skoðun fylgi að Eva Joly dugi ekki sem forsetaframbjóðandi þeirra í kosningunum undir lok apríl 2012. Þetta kemur fram á vefsíðu franska blaðsins Le Monde mánudaginn 16. janúar. Þar segir einnig að frambjóðandinn sé alls ekki þeirrar skoðunar að hún eigi að draga sig í hlé. Hún telur sig þvert á móti ná æ betri tökum á kosningabaráttunni. Þá hafi flokkurinn engan annan frambjóðanda til taks.
Skoðanakönnun sýndi 15. janúar að Eva Joly nýtur aðeins stuðnings 3% kjósenda. Komist hún ekki yfir 5% á framboð hennar eða flokkur að baki henni ekki rétt á neinum opinberum styrk vegna kosningabaráttunnar. Nái hún sér ekki á strik í komandi könnunum mun þrýstingur aukast frá þeim sem vilja annan frambjóðanda.
Flokkur franskra umhverfissinna EELV stendur ekki vel fjárhagslega og hefur ekki burði til að standa undir kostnaði af kosningabaráttu Joly. Le Monde segir að reikningar EELV og kosningasjóðs Joly séu aðskildir en engu að síður sé það jafnan svo að stjórnmálaflokkur gangi í ábyrgð gagnvart bönkum þegar leitað sé eftir lánsfé til að fjármagna kosningastarf.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.