Föstudagurinn 15. janúar 2021

Framkvæma­stjórn ESB hótar Ungverjum lögsókn til að knýja fram breytingar á nýrri stjórnar­skrá


16. janúar 2012 klukkan 18:55

Talið er líklegt að framkvæmdastjórn ESB veiti Ungverjum aðeins tveggja vikna frest til að breyta ýmsum umdeildum ákvæðum í nýrri stjórnarskrá Ungverjalands en sæta ella málssókn fyrir ESB-dómstólnum. Þetta kemur fram hjá AFP-fréttastofunni 16. janúar.

Mótmæli í Búdapest 14. janúar 2012.

Í fréttinni segir að framkvæmdastjórnin hafi samþykkt að hóta ríkisstjórn Viktors Orbáns með lögsókn vegna brota gegn grundvallar lýðréttindum og verði þessi niðurstaða kynnt 17. eða 18. janúar.

„Það er samkomulag um að senda þríþætt viðvörunarbréf,“ sagði ESB-embættismaður. „Málið verður þó rætt nánar á morgun þar sem þetta er alvörumál.“

Stuðningsmenn Orbáns samþykktu breytingar á stjórnarskrá Ungverjalands 31. desember 2011. Ráðamenn í Brussel lögðust gegn hluta breytinganna og vilja að þær séu afturkallaðar. Þar skiptir sjálfstæði seðlabankans annars vegar og dómtóla hins vegar mestu. Þá er einnig litið til ákvæða um persónuvernd.

Grípi framkvæmdastjórn ESB til refsiaðgerða gegn einhverju aðildarríki verður hún fyrst að senda viðvörun um að hún ætli að grípa til lagalegra úrræða.

Vikomandi ríki fær þá almennt tvo mánuði til að bregðast við aðfinnslum og hugsanlega breyta umdeildum lögum. Embættismaður ESB sagði AFP að ungversk yfirvöld fengju ef til vill aðeins 14 daga frest.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS