Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s hefur lækkað lánshæfiseinkunn björgungarsjóðs evrunnar, EFSF, úr AAA í AA+. Einkunn sjóðsins er reist á einkunnum þjóðanna sem standa að baki honum. Þýski fjármálaráðherrann sagði mánudaginn 16. janúar að Þjóðverjar mundu ekki greiða meira í sjóðinn. Hann ætti nóg fé til að sinna verkefnum sínum á næstunni.
Þýskaland er eina evru-ríkið sem nýtur AAA-einkunnar með stöðugum horfum. Holland, Finnland og Lúxemborg hafa einnig AAA-einkunn en með óvissum horfum. S&P lækkaði einkunnir Frakklands og Austurríkis úr AAA föstudaginn 13. janúar og því standa ekki nógu margar AAA-þjóðir að baki honum.
Lækkun einkunnarinnar kann að valda EFSF erfiðleikum við að afla sér lánsfjár á hagkvæmum kjörum. S&P segir að sjóðurinn kunni að öðlast AAA-einkunn að nýju með því að öðlast öflugri ábyrgðarmenn.
Robert Peston, viðskiptaritstjóri BBC, segir að björgunarsjóðir geti, eftir lækkanir S&P, sótt fé í poll eða tjörn í stað víðáttu hafsins sem teygir sig út fyrir sjóndeildarhringinn.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.