Mitt Romney, sem leitar eftir því að verða útnefndur forsetaframbjóðandi repúblikana í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust borgar að eigin sögn nálægt 15% af tekjum sínum i skatt á sama tíma og bandarískir launþegar borga almennt um 35% af tekjum sínum í skatta. Frá þessu er sagt á Reuters í dag.
Ástæðan fyrir því, að Romney borgar ekki meira af tekjum sínum í skatta er sú, að mikill hluti þeirra eru fjármagnstekjur og mestur hluti þeirra er söluhagnaður en skattur, sem greiddur er af fjármagnstekjum er mun lægri í Bandaríkjunum en tekjuskattur af almennum launatekjum.
Warren Buffet, einn ríkasti maður heims hefur upplýst að hann hafi borgað af tekjum ársins 2010 um 17,4% skatt og þar með kveðst hann borga mun lægri skatta, sem hlutfall af tekjum en ritari hans gerir. Buffet hefur lýst þeirri skoðun, að þetta sé óeðlilegt.
Í Daily Telegraph í dag kemur fram að skattgreiðslur Obama, forseta og konu hans nemi um 26% af þeirra tekjum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.