Miðvikudagurinn 20. janúar 2021

Almennar efasemdir um nýjar hugmyndir AGS-engir peningar frá Bandaríkjunum og Rússlandi


19. janúar 2012 klukkan 09:10
Christine Lagarde

Nánast allir þeir, sem hafa tjáð sig um nýjar hugmyndir AGS um að tvöfalda fjárhagslegt bolmagn sjóðsins upp í eina trilljón dollara hafa lýst efasemdum um að það gangi upp. Það á við um fjármálamarkaði, hagfræðinga og stjórnmálamenn að sögn Daily Telegraph í morgun. Christine Lagarde, aðalforstjóri sjóðsins kynnti þessar hugmyndir í gær eftir stjórnarfund í sjóðnum.

Greinendur hafa lýst þeirri skoðun, að frekari aðgerða verði þörf í Grikklandi, Portúgal og Írlandi og að AGS þurfi að koma bæði Ítalíu og Spáni til frekari hjálpar.

AGS hefur ekki tryggt sér þá upphæð, sem um er að ræða og hvorki Bandaríkin né Rússland munu leggja fram fé í þessu skyni. Daily Telegraph bendir á að jafnvel Schauble, fjármálaráðherra Þýzkalands geri sér grein fyrir veikleikanum í þessum áætlunum AGS. Bandaríkjastjórn yrði að leggja fjárframlög til AGS undir þingið og þar yrði tillaga um slíkt felld.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS