Föstudagurinn 22. janúar 2021

ESB: 51 milljón hænur búa við of þröngan kost - framkvæmda­stjórnin grípur til aðgerða


20. janúar 2012 klukkan 11:31

Framkvæmdastjórn ESB skýrði frá því fimmtudaginn 19. janúar að hún mundi grípa til lögsóknar á hendur þeim 14 ríkjum sem þar sem eggjabændum er enn leyft að láta hænur búa við þröngar, ólögmætar aðstæður.

Árið 1999 gengu í gildi ESB-lög sem bönnuðu lítil hænsnabúr og veittu ríkisstjórnum 13 ára aðlögunartíma – til 1. janúar 2012 – til að hrinda reglunum í framkvæmd og knýja bændur til að auka svigrúm hænsna sinna. Framkvæmdastjórn ESB telur að enn þann dag í dag búi 51 milljón hænsna við of þröngan kost.

Ríkin 14 sem sæta athugun framkvæmdastjórnarinnar eru Frakkland, Spánn, Belgía, Búlgaría, Kýpur, Grikkland, Ungverjaland, Ítalía, Lettland, Malta, Holland, Pólland, Portúgal og Rúmenía. Framkvæmdastjórnin getur beitt sektum til að knýja stjórnvöld til að fara að reglunum.

Samkvæmt reglunum á hver hæna að hafa 750 fersentimetra rými fyrir sig, hreiður og prik. Bent er á að sumar hænur búi enn við þær aðstæður að rými þeirra sé á stærð við A4 blað.

Frá og með 1. janúar 2012 má hvorki flytja út né setja í smásölu egg frá hænum sem búa í ólögmætum búrum. Þau má hins vegar nýta í matvælaiðnaði.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS