Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur samþykkt að afturkalla breytingar á seðlabankalögum lands síns sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) mótmæltu með vísan til þess að ákvæði laganna skertu sjálfstæði Seðlabanka Ungverjalands. ESB og AGS neituðu að ræða um fjárhagsaðstoð við ungversk stjórnvöld að óbreyttum lögum.
Í ræðu á ungverska þinginu sagði Orbán að hann ætlaði ekki að sameina seðlabankann og fjármálaeftirlitið. Áform um sameininguna höfðu vakið grunsemdir um aðför að sjálfstæði seðlabankans.
„Skaði þetta hagsmuni Ungverjalands er í sjálfsögðu ómögulegt fyrir okkur að samþykkja það,“ sagði Orbán á blaðamannafundi eftir að hafa hitt Michael Spindelegger, varakanslara Austurríkis, í Búdapest. Þar sem þetta væru ekki talin „lykilmál“ sagði hann að engar „hindranir“ væru á leið til breytinga.
Ungverjar hafa óskað eftir fjárstuðningi frá ESB og AGS til að geta byggt um varasjóð í því skyni að styrkja efnahag sinn. Föstudaginn 20. janúar áréttaði ESB að breytingar á réttarfars- og dómstólalögum auk breytinga á bankakerfinu væru skilyrði fyrir viðræðum um fjárhagsaðstoð.
Ráðgert er að Orbán og José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hittist í næstu viku til að komast að pólitísku samkomulagi um lausn ágreiningsmála vegna nýrrar stjórnarskrár Ungverjalands. Spindelegger frá Austurríki sagði á blaðamannafundinum föstudaginn 20. janúar að Orbán hefði smíðað tímaáætlun og skýrar tillögur að lausn ágreiningsefna sem hann ætlaði að kynna á fundinum með Barroso.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.