Obama Bandaríkjaforseti flutti báðum deildum Bandaríkjaþings skýrslu um stöðu þjóðarbúsins í nótt og hvatti til þess að Bandaríkjamenn hætti að greiða með hinum ríku en taki í þess stað upp 30% raunskatta á þá, sem hafa milljón dollara í árslaun eða meir. Meðal áheyrenda í heiðursstúku var kona að nafni Debbie Bosanek en hún er ritari Warren Buffet, eins ríkasta manns heims. Buffet hefur gagnrýnt að hann borgi minni hluta af tekjum sínum í skatta en ritari hans af hennar tekjum.
Í ræðunni hvatt Obama þingið til að koma böndum á Wall Street og sagði að fjármálafyrirtækin ættu sök á þeim efnahagsvanda, sem Bandaríkin ættu við að etja.
Reuters segir að gera megi ráð fyrir að þessi meginlína muni einkenna kosningabaráttuna vegna forsetakosninganna í haust en nýjustu upplýsingar sýna, að Mitt Romney, hugsanlegur frambjóðandi repúblikana í kosningunum hafi borgað 13,9% af árslaunum sínum í skatta.
Daily Telegraph segir að Obama hafi sagt að þeir sem vildu kalla boðskap hans stéttastríð væru frjálsir af því, en í augum flestra Bandaríkjamanna væri það heilbrigð skynsemi að ætlast til þess að milljarðamæringur borgaði sömu skatta og ritari hans. Bandaríkjunum væri stjórnað af elítu, sem væri vaðandi í peningum.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.