Ambrose Evans-Pritchard, alþjóðlegur viðskiptaritstjóri Daily Telegraph segir í blaði sínu í dag, að Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar sé kominn að þeirri niðurstöðu eftir stuttan tíma í embætti að kröfur hinna „efnahagslegu kalvinista“ ESB um að lækka fjárlagahalla Spánar úr 8% í 4,4% á einu ári séu ígildi sjálfsmorðs. Atvinnuleysi mundi fara vel yfir 25% og atvinnulausir verða 6 milljónir. Kröfurnar á hendur Spáni séu nánast fordæmalausar og einna helzt megi finna hliðstæðu á Írlandi sem hafi verið keyrt í kreppu og fasteignaverð í Dublin lækkað um 54%.
Ritstjórinn vitnar til ummæla Joseph Borrel, fyrrum forseta Evrópuþingsins og eins helzt talsmanns ESB-sinna á Spáni, sem segir að 60 árum eftir lok heimsstyrjaldarinnar síðari sé Þýzkaland á ný að verða óvinurinn og andrúm fjandskapar sé að breiðast út um meginland Evrópu.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.