Mikil verðhækkun á eggjum í Búlgaríu í aðdraganda páska hefur valdið mikilli reiði í Búlgaríu og leitt til þess að landbúnaðarráðuneytið varar við eggjabraski og leggur til að innflutningur verði aukinn.
„Við viljum ekki að braskað sé með egg. Framleiðendur verða að lækka verðið,“ sagði Miroslav Naydenov landbúnaðarráðherra þriðjudaginn 6. mars. „Við viljum ekki hafa afskipti af hinum frjálsa markaði en við getum flutt inn ódýrari egg frá Póllandi.“
Verð á eggjum hækkaði um 40% í síðustu viku og segja framleiðendur að hækkunina megi rekja til tilskipunar ESB um velferð og vellíðan hænsna frá 1. janúar 2012. Þar eru gerðar mun strangari kröfur en áður giltu um aðbúnað varphæna.
Framkvæmdastjórn ESB gagnrýndi Búlgara og 12 aðrar ESB-þjóðir harðlega í janúar sl. fyrir að fullnægja ekki nýjum ESB-reglum sem mæla fyrir um að hver varphæna eigi að minnsta kosti að hafa 750 fersentimetra rými til að komið sé til móts við „líffræðilegar og hegðunarlegar þarfir“ hennar.
Nú eru um 2,6 milljónir „hamingjusamra“ hæna á 119 býlum í Búlgaríu, 341.000 hænum er hins vegar óhjákvæmilegt að slátra af því að þær búa við ófullnægjandi aðstæður.
„Hænur verða hamingjusamari en fólkið óhamingjusamara,“ sagði Blago Dzhiev eggjabóndi við blaðið 24 stundir þriðjudaginn 6. mars um leið og hann fann að nýju reglunum og miklum kostnaði sem hækkaði eggjaverðið.
Búlgarir hafa fyrir sið að mála egg fyrir páskana og því er meiri eftirspurn núna en almennt. Landbúnaðarráðuneytið telur að framleiðendur noti stöðuna til að kanna hve langt þeir geti gengið í verðhækkunum.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.