Seðlabanki Evrópu leggst eindregið gegn því að nokkuð verði gefið eftir af bankaskuldum Írlands. Stjórnvöld á Írlandi tóku ábyrgð á öllum skuldbindingum írskra banka haustið 2008 þegar bankakreppan skall á og þær skuldbindingar eru nú stór hluti af þeim skuldum sem Írar hafa þurft að fá aðstoð frá öðrum evruríkjum til að ráða við. Írska ríkið greiðir nú afborganir af skuldabréfum tveggja írskra banka, Anglo Irish Bank og Irish Nationwide Building Society, sem báðir fóru í þrot. Framundan er í lok marz greiðsla sem nemur 3,1 milljarði evra. Samtals er talið að kostnaður írska ríkisins með vöxtum af þessum skuldbindingum nemi um 47 milljörðum evra fram til 2031 sem er um þriðjungur af vergri landsframleiðslu Írlands. Meðal þeirra, sem eiga þau skuldabréf írskra banka, sem írska ríkið greiðir af er Seðlabanki Evrópu sjálfur.
Rök Seðlabanka Evrópu fyrir því að ekki eigi að gefa neitt eftir af þessum skuldum er að Írland hafi svigrúm til að borga. Í því sambandi bendir SE Írum á að lækka laun opinberra starfsmanna og draga úr greiðslum í velferðarkerfinu á þeirri forsendu, að hvoru tveggja sé hærra á Írlandi en í þremur löndum, sem taki þátt í að hjálpa Írum þ.e. á Spáni, Slóveníu og Slóvakíu.
Vaxandi andstaða er meðal almennings á Írlandi við þessar greiðslur. Frá þessu segir Irish Times í dag.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...
Þýzka timaritið Der Spiegel segir að það sé að verða til „týnd kynslóð“ í Evrópu. Hin pólitíska elíta á meginlandinu hafi frekar viljað standa í gömlu hugmyndafræðilegu stríði en snúa sér að því verki að koma upp árangursríkri menntun og þjálfun, sem geri ungu fólki í Suður-Evrópu kleift að finna vinnu við sitt hæfi.
Hæðst að skriffinnum ESB vegna ólívuolíunnar - sagt minna á bannið við bognum agúrkum
Ákvörðun nefndar á vegum framkvæmdastjórnar ESB um að frá 1. janúar 2014 skuli ólívuolía borin fram í lokuðum flöskum á borð veitingastaða þykir mörgum hin undarlegasta frá því að lagt var bann við bognum agúrkum sá sínum tíma segir í The Guardian mánudaginn 20. maí. Blaðið segir að hæðst sé að sk...