Mánudagurinn 20. maí 2013

El País: PP fær meirihluta í Andalúsíu


9. mars 2012 klukkan 08:57

Sósíalistar munu tapa meirihluta þingsæta á fylkisþingi Andalúsiu, sem þeir hafa stjórnað í 30 ár skv. nýrri könnun að sögn spænska dagblaðsins El País í þingkosningum, sem fram fara þar 25. marz n.k. Könnun þessi leiðir í ljós að PP, spænski stjórnarflokkurinn (hægri flokkur) fái um 45% atkvæða og 54-55 sæti á fylkisþingi Andalúsíu, þar sem sitja 109 fulltrúar. Sósíalistar fá hins vegar 38% og 44-46 þingsæti.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Depardieu býr sig undir að eignast kaffihús í Rússlandi

Franski leikarinn Gérard Depardieu sem fékk rússneskan ríkisborgararétt í janúar 2013 var mánudaginn 20. maí opinberlega skráður sem atvinnurekandi í Saransk, höfuðborg Mordóvíu, um 650 km fyrir austan Moskvu. Fréttastofan Ría Novostoi flutti þessi tíðindi og hafði þau eftir Nikolai Borodatsjef, for...

Portúgal: 82,5% vilja rifta samningnum við þríeykið og fá hagstæðari lánskjör

Ný könnun í Portúgal sýnir að almenningur telur að síðustu aðgerðir í ríkisfjármálum landsins, harkalegur niðurskurður með fjöldauppsögnum muni aðeins leiða til verra ástands í landinu en nú ríkir. Þá stendur vilji meirihluta manna til þess að ríkis­stjórnin rifti samningum við ESB og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn (AGS) til að ná megi betri samningi en þeim sem nú gildir.

Kýpur: Um 60% viðskiptavina eins banka hugsanlegir aðilar að peningaþvætti

Um 60% af viðskiptvinum eins banka á Kýpur eru í áhættuhópi vegna peningaþvættis og villur eru í upplýsingum um nær þriðjung innistæðu­eigenda samkvæmt því sem fram kemur í skýrslu, sem lekið var á kýpverskri vefsíðu um helgina. Frá þessu segir euobserver. Skýrsla þessi var samin í apríl á vegum Evrópu­ráðsins og Deloitte að ósk fjármálaáðherra evruríkja.

Spánn: Mikill almanna stuðningur við 15-M mótmælendur

Almanna stuðningur við 15-M mótmælahreyfinguna, sem varð til á Spáni hinn 15. maí árið 2011 og breiddist út um mikinn hluta Evrópu er vaxandi á Spáni skv. nýrri könnun, sem El País, spænska dagblaðið segir frá í dag. Könnunin, sem Metroscopia framkvæmdi fyrir El País sýnir að Spánverjar líta svo á a...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS