Sunnudagurinn 26. maí 2013

FT:Milljarðar dollara greiddir út í skuldatryggingar vegna Grikklands


9. mars 2012 klukkan 20:38

ISDA, International Swaps and Derivatives Association, hefur komizt að þeirri niðurstöðu að um greiðslufall (credit event) sé að ræða hjá Grikklandi vegna þess, að gripið var til þvingunarákvæða til þess að tryggja markmið Grikkja vegna skuldabréfaskipta. Nefnd samtakanna, sem fjallaði um málið í dag var einróma í þessari afstöðu. Þetta kemur fram í Wall Street Journal.

Financial Times segir að þessi ákvörðun þýði að milljarðar dollara verði greiddir út í skuldatryggingar vegna grískra ríkisskuldabréfa.

WSJ segir að tryggingar verði greiddar út vegna samninga upp á 3,2 milljarða dollara. Daily Telegraph í London segir að ákvörðun ISDA geti kostað evrópska banka um 3,5 milljarða evra.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kínverjar reyna að blekkja Evrópu­menn með gervi-aspiríni

Franskir tollverðir hafa gert upptæka 1,2 milljón skammta af gervi-aspiríni frá Kína.

Grikkland: Flótti frá PASOK

Fyrrverandi menntamála­ráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "

Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu

Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráð­stefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópu­sambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.

Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns

Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, for­stjóri AGS og fyrrum fjármála­ráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútu­greiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS