Catherine Ashton, utanríkisráðherra ESB, heimsótti Svalbarða fimmtudaginn 8. mars til að árétta áhuga Evrópusambandsins á því að ná fótfestu á norurslóðum . „Sambandið hefur tekið til við að íhuga stefnu sína vegna norðurskautsins. Við höfum þegar efnt til funda um málið en ég vil kynna mér aðstæður sjálf og enginn staður er betri til þess en Svalbarði,“ sagði Ashton við komu sína þangað.
Ashton sagði að hún vildi eindregið að ESB fengi fast sæti áheyrnarfulltrúa í Norðurskautsráðinu með fulltrúum ríkjanna átta sem eiga aðild að því, Ísland er eitt þeirra.
„Við viljum stöðu áheyrnarfulltrúa – ekki aðeins vegna þess að nokkur aðildarríkjanna tengjast ráðinu heldur vegna þess að Evrópusambandið hefur ýmislegt til málanna að leggja þegar hugað er að ýmsum þáttum umhverfismálum,“ sagði Ashton í Kiruna í Svíþjóð áður en hún hélt til Svalbarða.
Kanadamenn og Rússar leggjast gegn áheyrnaraðild ESB.
Í ferð sinni um norðurslóðir ræddi Ashton orkumál, olíu- og gasvinnslu auk siglingaleiða.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Alaska Dispatch: Eiga Grænland og Færeyjar að fá sjálfstæða aðild að Norðurskautsráðinu?
Mia Bennett, sem fjallar um málefni Norðurslóða m.a. á vefmiðlinum Alaska Dispatch segir að nú beinist athyglin í málefnum Norðurskautsráðsins að því, hvort Grænland og Færeyjar eigi að fá sjálfstæða aðild að ráðinu með sama rétt og aðrir meðlimir þess eða endurheimta stóla við borðið á fundum þess....
Þýzkaland: Aðskilnaður viðskiptabanka og fjárfestingabanka að hluta
Samkvæmt fréttum Deutsche-Welle hefur Bundestag, þýzka þingið samþykkt lög um aðskilnað fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi með þeim fyrirvara þó, að hann ber að framkvæma ef umsvif sem rekja má til fjárfestingarbankastarfsemi ná 100 milljörðum evra eða um 20% af efnahagsreikningi.
Ítalía: Álagningu fasteignaskatta frestað- einn milljarður í vinnuhvetjandi aðgerðir
Hin nýja ríkisstjórn Enrico Letta á Ítalíu tilkynnti í gær fyrstu aðgerðir til tilslökunar í efnahagsmálum. Álagningu óvinsæls fasteignaskatts hefur verið frestað að kröfu flokks Berlusconi og einn milljarður evra settur í aðgerðir, sem eiga að vera vinnuhvetjandi.
Gagnrýni Schäubles á hægferð framkvæmdastjórnar ESB veldur undrun og reiði ESB-embættismanns
Embættismaður framkvæmdastjórnar ESB (sem óskaði nafnleyndar) sagði við AFP-fréttastofuna föstudaginn 17. maí að gagnrýni Wolfgangs Schäubles, fjármálaráðherra Þýskalands, á framkvæmdastjórnina fyrir að bregðast of hægt við vandamálum innan ESB eins og atvinnuleysi ungs fólks væri „óskiljanleg ... o...