Sarkozy Frakklandsforseti leggur nú áherzlu annars vegar á pópúlisma og hins vegar verndarstefnu að mati ónafngreinds diplómats í París, sem Financial Times ræðir við. Að sögn blaðsins er hann að ná til fólks með árásum á embættismennina í Brussel og kröfu um takmörkun á fjölda innflytjenda svo og kröfu um vernd fyrir atvinnuvegi gegn grimmilegri samkeppni. Þessi sókn Sarkozy er byrjuð að sjást í skoðanakönnunum. Mánuðum saman hefur hann verið á eftir Hollande en nú hefur hann komizt fram úr honum í tveimur könnunum og stendur jafnfætis honum í öðrum tveimur. Hollande er hins vegar enn í forystu í þeirri fimmtu.
Blaðamaður FT fór á heildsölu grænmetismarkað í Rungis skammt fyrir utan París og tók fólk þar tali. „Við erum þeir vinnandi Frakkar, sem fara snemma á fætur“ og Sarkozy talar um sagði einn viðmælandi FT en blaðamaðurinn segir augljóst að á meðal þeirra sem kaup og selja á þessum markaði njóti Sarkozy verulegs fylgis. Sami viðmælandi sagði að sér líkaði vel við orðið verndun eða höft (protectionism)
Sarkozy leggur nú mesta áherzlu á að ná fylgi frá Marine Le Pen leiðtoga Þjóðfylkingarnnar.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.