Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Günter Grass bannað að koma til Ísraels í krafti laga gegn nasistum


8. apríl 2012 klukkan 10:29

Eli Jischai, innanríkisráðherra Ísraels, tilkynnti sunnudaginn 8. apríl, að þýski rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Günter Grass hefði ekki heimild til að koma til Ísraels. Hefði hann áhuga á að kynna annarra þjóða mönnum lygaþvætting sinn ætti hann að snúa sér til Írans, þar hefðu menn áhuga á verkum hans.

Günter Grass

Miðvikudaginn 4. apríl birti Grass ljóð í Süddeutsche Zeitung þar sem hann varaði við hættunni af því ef Ísraelar réðust á kjarnorkustöðvar Írana. Grass hefur sætt mikilli gagnrýni innan og utan Þýskalands vegna ljóðsins. Hann ver afstöðu sína með því að ljóðinu hafi ekki verið beint gegn Ísraelum heldur ríkisstjórn landsins.

Ísraelski innanríkisráðherrann setur komubannið á Grass í krafti laga sem heimilar ríkisstjórninni að standa gegn því að fyrrverandi nasistar komi til Ísraels. Grass játaði fyrir nokkrum árum að hafa gegnt þjónustu í Waffen SS, vopnuðum sveitum þýska nasistaflokksins, síðustu mánuði síðari heimsstyrjaldarinnar þegar hann var 17 ára.

Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, hefur hafnað gagnrýni Grass á Ísrael. „Það sýnir ekki mikla andagift að leggja Ísrael og Íran siðferðilega að jöfnu, það er fráleitt,“ segir utanríkisráðherrann í grein í Bild am Sonntag án þess þó að víkja beint að nýjasta ljóði rithöfundarins. Hann segir að menn eigi ekki að gera sér leik að neinu varðandi deiluna við ríkisstjórn Írans, þar sé um dauðans alvöru að ræða. Menn horfist ekki í augu við veruleikann ef þeir telji enga hættu stafa frá Íran.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS