Ábending frá fulltrúa í bankaráði Seðlabanka Evrópu, Benoit Coeure, í gær kann að hafa átt þátt í að róa fjármálamarkaði að sögn Financial Times í morgun. Bankaráðsmaðurinn vakti athygli á því að Seðlabanki Evrópu hefði tæki til að hafa áhrif á skuldabréfamarkaði. Á undanförnum mánuðum og misserum hefur bankinn hvað eftir annað keypt bæði ítölsk og spænsk skuldabréf og með því haldið ávöxtunarkröfunni niðri. Bankinn hefur hins vegar haldið að sér höndum á þessum markaði frá því í janúar. Krafan á 10 ára spænsk bréf fór aðeins yfir 6% á þriðjudag en í gær var hún komin niður í 5,87%.
FT bendir hins vegr á að slíkt inngrip SE í markaðinn gæti leitt af sér deilur innan bankans. Jurgen Stark, sem var fulltrúi Þjóðverja í bankaráðinu sagði af sér á síðasta ári og hefur síðar staðfest að ástæðan hafi verið ágreiningur hans við bankastjórn um þessi viðskipti. Jens Weidmann, aðalbankastjóri Bundesbank hefur gagnrýnt SE harðlega fyrir trilljón evra lánin í desember og febrúar.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.