Bretar hafa áhuga á að kaupa orku frá Íslandi um kapal að sögn brezka dagblaðsins Guardian í morgun. Blaðið segir að slíkur kapall yrði 1000-1500 km langur og yrði sá lengsti í heimi. Charles Hendry, orkuráðherra Bretlands kemur í heimsókn til Íslands í maí til frekari viðræðna en blaðið segir að viðræður hafi farið fram á milli brezkra og íslenzkra stjórnvalda um málið.
Í samtali við Guardian vísar Hendry sérstaklega til jarðvarmans á Íslandi.
Slíkir kaplar tengja Bretland nú við Frakkland og Holland. Í haust verður tekinn í notkun kapall á milli Írlands og Wales. Árið 2019 er reiknað með að 900 km kapall á milli Bretlands og Noregs verði tekinn í notkun. Hendry segir ljóst að Bretar verði háðir öðrum þjóðum um orku í framtíðinni. Með slíkum köplum verði einangrun Bretlands í orkumálum rofin og orkukostnaði heimila verði haldið niðri.
Fyrir nokkrum mánuðum birtist greinaflokkur hér á Evrópuvaktinni um möguleika á orkusölu frá Íslandi um kapal.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.