Mánudagurinn 25. janúar 2021

Írland: Verðum að endurreisa orðspor okkar í augum umheimsins, sagði Eamon Gilmore


15. apríl 2012 klukkan 09:46

Eamon Gilmore, leiðtogi írska Verkamannaflokksins, sagði á landsfundi flokksins í Galway í gær, að ríkisstjórn Írlands vinni samkvæmt markvissri áætlun að því að endurreisa Írland. Efnahagsleg endurreisn sé fyrsta markmiðið en það sé ekki takmark í sjálfu sér heldur leið að því marki að skapa réttlátt og sanngjarnt samfélag á Írlandi.

Fyrsta skrefið sé að endurreisa orðspor Írlands í augum umheimsins. Írland eigi mikið undir samskiptum við umheiminn, meira en flestar aðrar þjóðir. Við flytjum út um 80% af öllu, sem við framleiðum sagði Gilmore.

Í öðru lagi er verkefni okkar að auka útflutning og afla nýrra markaða. Það er að gerast.

Í þriðja lagi er verkefni okkar að örva efnahagslífið heima fyrir.

Og í fjórða lagi verðum við að takast á við skuldir heimilanna. Öll okkar óttumst meira að missa húsin en að missa vinnu.

Að lokum munum við endurheimta efnahagslegt sjálfstæði okkar og sendum þríeykið heim sagði Eamon Gilmore við mikil fagnaðarlæti. Frá þessu segir Irish Times.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS