Mánudagurinn 25. janúar 2021

Sviss: Stórhertar reglur um starfsemi vogunar­sjóða


15. apríl 2012 klukkan 10:27

Svisslendingar hafa nú í undirbúningi að setja mjög strangar reglur um starfsemi vogunarsjóða í landinu að sögn Financial Times, sem segir jafnframt að margir sjóðstjórnendur, sem hafi flutt frá London til Sviss til að njóta frjálsræðis þar hafi þungar áhyggjur af þessum áformum.

Samkvæmt drögum að lagafrumvarpi, sem liggur fyrir verður Sviss í framtíðinni það land, sem gerir mestar kröfur um lagaumhverfi vogunarsjóða í stað þess að vera það land, þar sem mest frjálsræði ríkir nú. Með þessum breytingum ætla Svisslendingar bæði að standa jafnfætis ESB, sem hefur slíkar reglur í undirbúningi en í einhverjum tilvikum að ganga lengra. Stjórnvöld í Sviss segja að markmiðið sé að bæta gæði eignastjórnunar og veita fjárfestum meiri vernd en áður. Gerðar verða meiri kröfur um gagnsæi í skattamálum og upplýsingum um eignir en jafnframt verða vogunarsjóðir að veita bæði eftirlitsaðilum og fjárfestum mjög nákvæmar upplýsingar um starfsemi sína, gangast undir óháða endurskoðun og takmarkanir bæði á skuldsetningu og launagreiðslum til starfsmanna.

Frá þessu segir Financial Times.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bréf Víglundar til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar: Leynimakk við kröfuhafa á svig við neyðarlögin

+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingis­húsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS