Miðvikudagurinn 27. janúar 2021

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn spáir vexti á heimsvísu en varar við annarri kreppu á evru-svæðinu einkum vegna ástandsins á Spáni


17. apríl 2012 klukkan 14:33

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir að „nokkurrar bjartsýni gæti að nýju“ í heimsbúskapnum og spáir aðeins örari hagvexti en áður. Nú er spáon um 3,5% vöxt á árinu 2012 í stað 3,3% áður. AGS varar hins vegar við því að önnur keppa kunni að verða á evru-svæðinu og segir að í flestum stóru hagkerfunum séu enn „þungar hömlur á vexti“.

Christine Lagarde forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Í nýrri skýrslu og spá AGS kemur fram að innan evru-svæðisins hafi spá verið breytt og spáð meiri samdrætti en vexti í einu landi á árinu 2012, Spáni. Lántökukostnaður spænska ríkisins hefur hækkað og er nú yfir 6% á 10 ára ríkisskuldabréfum sem endurspeglar ótta lánveitenda við að Spánverjar geti ekki staðið í skilum án neyðarlána.

Fjárfestar hafa áhyggjur vegna hagtalna sem sýna að bankar á Spáni eiga næstum allt undir því að fá fé að láni frá Seðlabanka Evrópu (SE). Þriðjudaginn 17. apríl tvöfölduðust næstum vextir á 18 mánaða spænskum ríkisskuldabréfum og fóru í 3,1%. Fimmtudaginn 19. apríl verða 10 ára ríkisskuldabréf boðin til sölu.

Á Spáni ganga 4,75 milljónir manna atvinnulausir meira en 50% þeirra sem eru 25 ára og yngri. AGS telur að á árinu 2012 verði 1,8% samdráttur á Spáni, áður hafði verið talið að hann yrði 1,6%.

AGS telur að með kröfum um síaukinn niðurskurð ríkisútgjalda í flestum vestrænum ríkjum sé farið inn á hættuslóðir og leggur sjóðurinn til að útgjöld verði aukin, hugsanlega á kostnað skattgreiðenda, til að viðhalda hagvexti.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS