Bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Seðlabanki Spánar hafa efasemdir um að spænska ríkisstjórnin nái settum markmiðum í ríkisfjármálum á árinu 2013 eins og stefnt er að. Þetta kemur fram í spænska dagblaðinu El País í dag. AGS telur að markmið um 3% fjárlagahalla, sem ríkisstjórn Rajoy ætlar að ná á næsta ári muni ekki nást fyrr en 2018. Jafnframt spáir AGS fjárlagahalla á þessu ári, sem nemi 6% en ekki 5,3% eins og markmið ríkisstjórnarinnar er og 5,7% á næsta ári. Fernandez Ordónez, spænski seðlabankastjórinn, telur að tekjur verði minni og útgjöld meiri en áætlað er á þessu ári.
Financial Times segir í dag, að embættismenn hjá ESB staðhæfi að Spánn þurfi ekki á neyðarláni að halda en blaðið heldur því fram, að þeir hafi engu að síður skoðað þá kosti sem fyrir hendi séu verði lántökukostnaður Spánar óbærilega hár. Líklegasta leiðin sé sú að EFSF, hinn tímabundni neyðarsjóður ESB veiti lán á lágum vöxtum til að endurfjármagna spænska bankakerfið.
Reuters segir í dag að sérfræðingar, sem fréttastofan talar við séu þess fullvissir, að Spánn þurfi á neyðarláni að halda fyrir bankana og jafnvel fyrir ríkið sjálft, það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.