Jean-Claude Juncker, formaður ráðherraráðs evru-ríkjanna, sagði við þýska blaðið Welt am Sonntag sunnudaginn 29. apríl að hann ætlaði að ræða við François Hollande, forsetaframbjóðanda franskra sósíalista, og fá hann ofan af andstöðu hans við ríkisfjármálasamning ESB-ríkjanna.
Í þýska blaðinu er Juncker spurður hvað hann muni gera ef Hollande sigrar í forsetakosningunum 6. maí með þá stefnu að breyta ríkisfjármálasamningnum. Juncker sagði að hann mundi „tala við Hollande“.
„Hugmyndin um að unnt sé að endurskrifa samninginn og afmá mikilvæg atriði hans er reist á blekkingu,“ er haft eftir Juncker.
Hollande vill að sett verði ákvæði um hagvöxt í samninginn og hann segist muni beita neitunarvaldi verði ekki komið til móts við óskir hans.
Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, sagði við Welt am Sonntag að hann væri „fullviss“ um að ríkisfjármálasamningurinn yrði staðfestur þar sem hann „skapaði traust á kerfinu til langs tíma“.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.